Í þessum áfanga sem er valáfangi fyrir nemendur þriðja bekkjar er krafist afar agaðra vinnubragða og skipulagshæfni því áfanginn byggist á sjálfstæðum lestri bókmennta á ensku án reglulegrar leiðsagnar kennara. Nemandi velur sér fimm skáldsögur af kjörbókalista og les þær sjálfstætt. Listinn er byggður upp af skáldsögum sem almennt eru talin tímamótaverk á enskri tungu sem og bókum sem oft er vísað til. Á nokkurra vikna fresti hittir nemandinn kennarann og gerir munnlega grein fyrir lestri sínum á ensku. Umfjöllunin skal vera ítarleg og ígrunduð og mun kennarinn spyrja út í verkið og höfund þess.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
klassískum bókmentum og gildi þeirra
höfundum klassískra bókmennta og áhrifum þeirra bæði á samtímann og seinni tíma þar sem við á
stíl og málsniði skáldverkanna
því tímabili sem skáldverkin spanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sjálfstætt klassískar bókmenntir á ensku
lesa dýpra í skáldverkin og túlka innihald þeirra
tjá sig á ensku um skáldverkin og dýpri merkingu þeirra
lesa á milli línanna og tjá sig um það sem þar er að finna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér nákvæma grein fyrir innihaldi skáldverka
ræða um innihald skáldverka á ensku
gera sér ljósa grein fyrir og geta rætt um þemu skáldverka
gera sér grein fyrir og geta rætt um stíl og málsnið skáldverka
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.