Nemendur kynnast helstu kenningum þroskasálfræðinnar. Megináhersla er á ýmsa áhrifaþætti í uppeldi barna, aðstæður íslenskra barna í víðu samhengi og hvaða úrræði standa þeim til boða sem á þurfa að halda. Nemendur kynna sér helstu þroskafrávik og þroskahamlanir. Áhersla er á uppeldistengd verkefni, fræðileg og skapandi. Vísindaleg nálgun sálfræðinnar, aðferðir við upplýsingaöflun og að koma efninu frá sér á fræðilegan hátt í ræðu og riti verða mikilvægir þættir í efnistökum áfangans.
Sálfræði á öðru þrepi eða aðrar félagsgreinar. Enska á öðru þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að beita vísindalegum aðferðum við rannsóknir
helstu hugtökum uppeldisfræðinnar
skilgreiningu á uppeldisfræði og þróun greinarinnar
helstu kenningum innan uppeldisfræðinnar
hagnýtu gildi uppeldisfræðinnar
umhverfisþáttum og erfðum sem mótunaröflum atferlis
útskýringum uppeldisfræðinnar á nokkrum þáttum hugsunar og atferlis eins og minnis, náms, svefns, greindar og persónuleika
siðferði við rannsóknir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita grunnhugtökum uppeldisfræðinnar
útskýra helstu hugmyndir sem mótað hafa fræðigreinina
lesa í og skilja niðurstöður mikilvægra rannsókna í uppeldisfræði
afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
nýta fræðilega texta á íslensku og erlendu tungumáli
tjá kunnáttu sína skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á gagnrýninn hátt um afmarkaða efnisþætti uppeldisfræðinnar
finna raunhæfar lausnir á mismunandi viðfangsefnum
sækja þekkingu úr öðrum greinum til aukins skilnings á viðfangsefninu og yfirfæra þekkingu á aðrar greinar til þess að sjá fræðilegt samhengi
geta tekið gagnrýna afstöðu til samfélagslegra álitamála er snúa að uppeldisfræðinni
sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
geta metið eigið vinnuframlag og annarra
afla, meta og nota heimildir á viðurkenndan hátt
gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis og erfða á eigin sjálfsmynd og annarra
skilja samspil atferlis, hugsunar og tilfinninga
hagnýta uppeldisfræðina í daglegu lífi á jákvæðan hátt sér og öðrum til framdráttar
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.