Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1529580803.44

    Jákvæð sálfræði
    SÁLF3JS03
    27
    sálfræði
    Jákvæð sálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    MA
    Nemendur kynnast jákvæðri sálfræði sem fræðigrein, hvernig hægt er að nýta hana í daglegu lífi og læra leiðir til að efla sjálfsmynd sína og vellíðan. Megináhersla er á mannlega styrkleika og hvernig hægt er að nýta eigin styrkleika til að gera líf sitt betra með því að þjálfa sig og vinna að settum markmiðum. Leitast er við að auka skilning nemenda á eigin getu og hæfni og áhersla lögð á virkni þeirra í tímum og við upplýsingaöflun/verkefnavinnu. Nemendur vinna meðal annars að ígrundunardagbók yfir önnina og gera æfingar að uppbyggilegum samskiptum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu kenningum jákvæðrar sálfræði og nauðsynlegum þáttum til hamingjuríks lífs
    • vísindalegu og samfélagslegu gildi greinarinnar og stöðu hennar
    • hefðbundnum leiðum til hamingju og leiðum jákvæðrar sálfræði
    • gildi fyrirgefningarinnar, óeigingirni og þakklætis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ígrunda eigin hugsanir og tilfinningar
    • endurmeta og skoða eigin viðhorf til lífsins með markvissum æfingum
    • lesa heimildir og rannsóknargögn á gagnrýninn hátt
    • skoða eigin kosti og galla
    • vinna með styrkleika sína
    • setja sér markmið og gera framkvæmdaáætlun
    • miðla eigin skoðunum og viðhorfum til lífsins
    • tileinka sér jákvæða afstöðu til lífsins
    • að velja milli kenninga og aðferða við lausn verkefna
    • vinna sjálfstæða og skapandi rannsókn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bæta eigið sjálfsmat og auka víðsýni
    • beita leiðum jákvæðrar sálfræði til að öðlast aukna lífshamingju
    • beita skapandi og lausnarmiðaðri hugsun og leiðum í námi og starfi
    • koma auga á og fyrirbyggja neikvæðar hugsanir og viðhorf
    • efla sjálfsþekkingu sína og miðla jákvæðum lífsgildum
    • lesa heimildir og rannsóknargögn greinarinnar á gagnrýninn hátt
    • nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt.
    • sýna sjálfum sér og öðrum umburðarlyndi og skilning í lífi og starfi
    • setja fram nákvæmar röksemdir fyrir skoðunum sínum
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.