Viðfangsefni áfangans miðast við undirbúa fólk fyrir stjórnunarstörf í samfélaginu, gera það meðvitað um mikilvægi sjálfbærni og samfélaga ábyrgð. Fjallað er um mikilvægi góðarar stjórnunar og að ákvarðanir séu teknar að vel athuguðu máli. Farið er í grunnhugtök og kenningar í stjórnun. s.s. skipurit, valddreifingu, markmiðasetningu og hvatningu. Nemandanum eru kynnt gildi stjórnunar og skipulagningar fyrir einstaklinginn og fyrirtækið, hann fær innsýn í hlutverk, verksvið og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja í mannauðsstjórnum og verkefnastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á persónuþróun, nemandinn lærir að meta og þekkja kosti sína og galla, tileinka sér verkefna- og tímastjórnun og setja sér markmið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kostum sínum og göllum.
hlutverki sínu í hópavinnu.
mikilvægi stjórnunar fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið.
helstu stjórnunarkenningum og stílum.
mikilvægi valddreifingar.
mikilvægi markmiðasetningar.
undirgreinum stjórnunar.
helstu skipuritum um dreifingu valds og ábyrgðar.
grunnatriðum mannauðsstjórnunar.
verkefnastjórnun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja sér markmið.
skipuleggja tíma sinn.
stýra fundum
taka starfsmannaviðtöl.
skrifa fundagerðir.
gera svót greiningu.
setja saman verkáætlun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um hlutverk og störf stjórnanda með gagnrýnum augum.
rökræða helstu stjórnunarstíla.
leysa af hendi starfsmannaviðtöl.
vera ábyrgur fyrir fundarstjórnun.
meta vandamál með gerð SVÓT greiningar.
taka þátt í skipulagningu á verkefni með gerð verkáætlunar og geta dregið saman upplýsingar til úrvinnslu og upplýstrar ákvörðunartöku.
öðlast skilning á hlutverki stjórnanda.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.