Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536069957.39

    Persónuleika- og félagssálfræði
    SÁLF3PF05
    29
    sálfræði
    félagssálfræði, persónuleikasálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Atferli, hugsanir og viðhorf skoðuð í félagslegu samhengi. Fjallað um helstu mótunaráhrif á persónuleika fólks út frá sálfræðilegu sjónarmiði. Ýmsir persónuleikaþættir eru skoðaðir sérstaklega og fjallað um félagslega hegðun og viðhorf fólks í tengslum við samskipti sem hafa mótandi áhrif á persónuleikann. Fjallað er um náin sambönd og samskipti og hugsanleg tengsl milli persónuleikaþátta og veikinda eða hamingju í lífinu. Nemendur fá tækifæri til að skoða sín eigin persónuleikaeinkenni meðal annars með því að taka 16 þátta persónuleikapróf.
    SÁLF2IN05 eða áfangi á öðru þrepi í félagsgreinum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - persónuleikahugtakinu og helstu mótunaráhrifum á persónuleika fólks
      - staðalmyndum, fordómum og breytingu á fordómum
      - aðlöðun og ást, samskiptum og tjáningu
      - persónuleikaprófum
      - mismunandi nálgun sálfræðinnar á persónuleika og hegðun fólks bæði í samskiptum við umhverfi sitt og annað fólk
      - völdum hugtökum og kenningum innan félags- og persónuleika­sálfræðinnar
      - framlagi félags- og persónuleikasálfræðinnar innan sálfræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - beita almennum aðferðum félagssálfræðinnar
      - taka sjálfstæða, vel rökstudda afstöðu til álitamála varðandi félagssálfræði, greind og persónuleika
      - afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
      - nýta fræðilegan texta á íslensku
      - miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
      - sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
      - beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
      - meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
      - geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast félags- og persónuleikasálfræði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.