Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1538389818.2

    Verkleg líffræði
    LÍFF3VR05(MA)
    22
    líffræði
    Verkleg líffræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    MA
    Áfanginn felst í upplýsingaöflun, verklegum æfingum og skýrslugerð. Markmið áfangans er að nemendur tileinki sér vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Boðið er upp á fjölbreyttar verklegar æfingar sem nemendur geta að hluta til valið sjálfir. Þær æfingar sem allir nemendur gera eru frumuskoðun, ræktun baktería og Gramlitun baktería, frumveruræktun og greining frumdýra, krufningar og rannsóknarverkefni. Auk þess er að finna fjölda æfinga er nemendur geta valið sjálfir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum frumugerðum innan allra ríkja lífvera
    • hlutverki smásjár og víðsjár
    • gerð og vaxtarskilyrðum baktería
    • gerð og vaxtarskilyrðum frumvera, ásamt mikilvægi þeirra í vistkerfum
    • mikilvægustu verklagsreglum við krufningar
    • vísindalegum aðferðum
    • mikilvægis þess að beita nákvæmni við verklegar æfingar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja mun á helstu frumugerðum lífvera
    • útbúa smásjársýni þegar það er við hæfi
    • setja upp bakteríuræktun og framkvæma Gramlitun
    • setja upp frumveruræktun
    • beita réttum verklagsreglum við krufningar á ábyrgan hátt
    • setja upp vísindalegt verkefni byggt á athugunum sem leiða til tilgátu og rannsókna með samanburðartilraun
    • fylgja fyrirvaralaust helstu verklagsreglum og gæta aðgæslu og öryggis hverju sinni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina á milli ólíkra frumugerða
    • geta gert greinarmun á hvenær heppilegt er að nota smásjá og hvenær víðsjá
    • greina og flokka bakteríur með hliðsjón af fræðum og framkvæmdum
    • greina og flokka frumverur
    • draga álaktanir af rannsóknarverkefni með rökstuddum niðurstöðum
    • geta sýnt sjálfstæði og beitt gagnrýnni hugsun
    • skrifa góðar og nákvæmar skýrslur
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.