Í þessum áfanga fer nemandinn í starfsþjálfun á vinnustað. Æskilegt er að hann taki alla starfsþjálfunina á sama vinnustaðnum og hjá sama iðnmeistaranum, en mögulegt er að skipta starfsþjálfuninni á fleiri vinnustaði og meistara. Nemandinn á að vinna við sem fjölbreyttasta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum er með ferilbók, sem nemandinn og iðnmeistari fylla inn í eftir framvindu. Æskilegt er að starfsþjálfun sé lokið áður en nemandinn hefur nám á lokaönn í skóla. Skólinn hefur eftirlit með starfsþjálfun nemandans og staðfestir hana með samþykkt sinni á ferilbókinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
námsleiðum innan bygginga– og mannvirkjagreina
öryggiskröfum á vinnustað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og greina einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn
beita algengustu áhöldum og tækjum innan atvinnugreinarinnar
fara vel með tæki og tól og nýta vel það efni sem unnið er með
gæta öryggis við vinnu og á vinnustað
ganga fagmannlega frá í kennslustofu og á vinnustað og fara eftir leiðbeiningum kennara og verkstjóra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sinna störfum innan bygginga– og mannvirkjaiðnaðar
nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
nota helstu efni sem unnið er með í bygginga– og mannvirkjaiðnaði
fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað
tileinka sér mikilvægi heilsuverndar og umhverfisverndar í atvinnugreininni
skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.