Hryllingssögur, bókmenntategundir, frásagnarhefð og einkenni
Samþykkt af skóla
3
5
AV
Fjallað verður um íslenskar hrollvekjur í sem víðustum skilningi, í ljósi fortíðar og nútíðar, frásagnarhefðar og sagnaskemmtunar og þær tengdar við erlendar bókmenntir af sama meiði. Litið verður til fornaldarsagna sem og íslenskra þjóðsagna sem margar hverjar hafa yfir sér óhugnanlegan blæ. Rætt verður um einkenni þessarar bókmenntategundar og það skoðað hvernig hún hefur breyst í aldanna rás og einnig reynt að finna út hvað skýrir vinsældir hrollvekja. Lesin verða nokkur verk sem flokkast geta undir þessa tegund bókmennta, rætt um þau og ritað. Verkin verða greind með hliðsjón af hefðinni og helstu samtímastraumum hverju sinni og einnig verður kvikmyndum, sem gerðar hafa verið eftir skáldsögum, gefinn gaumur. Nemendur verða einnig þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og heimildavinnu. Nemendur kynna sér fræðilegar greinar sem tengjast efninu. Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi verkefni sem reyna á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mismunandi hæfni nemenda, auka víðsýni og gagnrýna hugsun. Nemendur vinna ýmist hver fyrir sig eða með öðrum.
10 einingar á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einkennum og formi bókmenntategundarinnar
sögu og þróun hrollvekjubókmennta á Íslandi
sögu og þróun hrollvekjubókmennta í Evrópu og Bandaríkjunum
stöðu bókmenntagreinarinnar innan bókmennta
tengslum bókmenntagreinarinnar við aðra miðla svo sem kvikmyndir og sjónvarp
nokkrum verkum íslenskra og erlendra hrollvekjuhöfunda
notkun heimilda og hjálpargagna í tengslum við verkefnavinnu
frágangi og skráningu heimilda
grundvallarreglum við byggingu og uppsetningu ritsmíða
grunnhugtökum í bókmenntafræði og beitingu þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa algengustu tegundir bókmenntatexta
beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarhorn í bókmenntum
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja, greina og tengja bókmenntatexta við ríkjandi stefnur í listum á hverjum tíma
skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta, á vönduðu og blæbrigðaríku máli
taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
átta sig á samfélagslegum og bókmenntasögulegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
nýta sér heimildir af ýmsum toga í tengslum við námsefni og verkefnavinnu
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við úrvinnslu og skil á verkefnum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.