Í þessum áfanga verður fjallað um sögu og þróun íslenskrar kvikmyndagerðar. Sýndar verða valdar myndir frá ýmsum tímum og reynt að svara spurningunni: „Hvað einkennir íslenskar kvikmyndir?“ Stuðst verður við hugtök úr bókmennta- og kvikmyndafræði eftir því sem þörf krefur og leitast við að tengja kvikmyndirnar við þróun og breytingar á íslensku samfélagi.
Nemendur ræða kvikmyndirnar og/eða skrifa um þær. Eins verður gefinn kostur á myndrænni framsetningu, til dæmis í formi stuttmynda.
Menningar- og náttúrulæsi, ÍSLE2MÁ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu kvikmyndum sem framleiddar hafa verið á Íslandi á íslensku
helstu hugtökum bókmennta- og kvikmyndafræði
þróun íslenskra kvikmynda
straumum og stefnum í íslenskri kvikmyndagerð
menningarsögulegum bakgrunni íslenskra kvikmynda
hvernig orðaforði og málfar hefur þróast í íslenskum kvikmyndum
grunnatriðum er lúta að myndvinnslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að skilja og nota bókmennta- og kvikmyndafræðihugtök
að greina kvikmyndir og tengja við strauma og stefnur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka kvikmyndir og setja í menningarlegt samhengi
taka þátt í umræðum um íslenskan kvikmyndaarf
skrifa vandaðan texta um kvikmyndir
fjalla um og skilja helstu verk íslenskra kvikmyndaleikstjóra
að búa til stuttmynd
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.