Í áfanganum er fjallað um almenn lífsskilyrði örvera og gerla, um veirur, ger- og myglusveppi. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma.
Í áfanganum fá nemendur fræðslu og þjálfun í hreinsun umhverfis, tækja og áhalda. Þeir læra að þekkja og meðhöndla algengustu ræstiefni og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar. Nemendur læra að gera hreinlætisáætlanir og eru þjálfaðir í að fylgja þeim eftir. Fjallað er um innra eftirlit, kennt um aðferðir við greiningu áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að halda vinnusvæði og búnaði hreinum. Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma og ábyrgð matvælaframleiðenda í því sambandi. Fjallað verður um gerla, veirur, ger- og myglusveppi og almenn lífsskilyrði örvera.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
náttúrulegum heimkynnum örvera
flokkun örvera
smitleiðum örvera
vaxtarskilyrðum örvera og vaxtarkúrfu örvera
tegundum sjúdómsvaldandi bakería
á matarsjúkdómum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta áhættu við framleiðslu og dreifingu matvæla
skilja hver eru grundavallaratriði við framleiðslu og dreifingu matvæla m.t.t. yfirfærslu örvera
meta ferskleika hráefnis með tilliti til gæða
koma í veg fyrir krossmengun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta kröfur til hráefna
meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
fyrirbyggja krossmengun
meta hvenær á að mæla hitastig
bregðast við frávikum
kunna það helsta sem máli skiptir varðandi persónulegt og almennt hreinlæti á vinnustað
skilja hreinsiáætlanir, þörfina fyrir þær og geti fylgt slíkum áætlunum eftir og viðhaldið þeim
kynnast eiginleikum helstu hreinsiefna og þekki notkun þeirra
þekkja ákvæði laga og reglugerða um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla
öðlast skilning á mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu
meta undirstöðuþekkingu á lífsskilyrðum, fjölgun og dreifingu örvera og aðferðum til að fyrirbyggja skaðleg áhrif af þeirra völdum
þekkja ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum í að koma í veg fyrir matarsjúkdóma