Helstu lykilhugtök í íþróttasálfræði eru skoðuð og nemendur líta í eigin barm með það að leiðarljósi að efla sig og innri áhugahvöt sína bæði í íþróttum og í öðru sem liggur fyrir að taka sér fyrir hendur í lífinu. Fjallað er um áhugahvöt, þrautseigju, spennustig, endurgjöf, samskipti, sjálfstraust o.fl. Sérstök áhersla er lögð á hugarþjálfun og hún æfð markvisst alla önnina. Leitast er við að hafa áfangann sem hagnýtastan þannig að nemendur prófa hinar ýmsu aðferðir á eigin skinni og tengja við fræðin eins og til dæmis að gera æfingar ætlaðar til að efla áhugahvöt í íþróttinni, líkamsræktinni sinni eða öðru sem liggur nálægt, taka styrkleikapróf á netinu og vinna með niðurstöður þess í framhaldinu. Einnig verður fjallað um íþróttamenningu sem hefur skapast í hinum ýmsu íþróttagreinum eins og vígslur inn í hópa og fleira í þeim dúr. Munurinn á konum og körlum í íþróttum verður skoðaður sem og fjölmiðalumfjöllun og fjallað um jafnréttisbaráttu innan íþróttahreyfingarinnar og því velt upp hvaða áhrif þessir þættir geta haft á andlega heilsu iðkenda. Markmið er að nemendur þori að stíga fram og að þeir beiti gagnrýninni hugsun hvað þessi mál varðar. Reiknað er með að þriðjungur áfangans verði tekinn utan skólatíma þar sem farið verður í æfingabúðir í að minnsta kosti rúman sólarhring, hópurinn hristur saman, leitað inn á við og unnið að ýmsu verkefnum sem tengjast hugrænni- og líkamlegri þjálfun.
LÆSI2ME10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu lykilhugtökum í íþróttasálfræði s.s. áhugahvöt, þrautseigju, spennustig, endurgjöf, samskipti o.fl.
hvernig hugarþjálfun getur farið fram
VIA styrkleikaprófi
markmiðssetningu
íþróttamenningu í mismunandi íþróttagreinum
andlegum áhrifum fjölmiðlaumfjöllunar og jafnréttisbaráttu
mikilvægi góðs liðsanda við íþróttaiðkun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
halda uppi samræðum um lykilhugtök íþróttasálfræðinnar
nýta sér hugarþjálfun til þess að stjórna spennustigi sínu
greina og vinna úr niðurstöðum VIA styrkleikaprófs fyrir sjálfan sig
setja sér markmið til lengri og skemmri tíma
beita gagnrýninni hugsun um íþróttamenningu ýmiskonar, spyrja spurninga og velta fyrir sér áhrifum á einstaklinga/þátttakendur almennt
halda uppi samræðum um andleg áhrif sem umfjöllun fjölmiðla getur haft á íþróttafólk og jafnrétti kynjanna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
efla eigin þrautseigju
vinna með leiðir til að stjórna spennustigi sínu og minnka streitu
nýta leiðir til þess að viðhalda og efla áhugahvöt sína í íþróttum eða hreyfingu
nota sýnimyndir í huganum og aðra hugræna þjálfun til að efla sjálfan sig
þróa og nýta sér venjur til að efla einbeitingu og auka vellíðan
nýta styrkleika sína til að efla sjálfan sig og átta sig á hvaða aðra styrkleika er áhugavert að efla enn frekar
þekkja leiðir til að leggja sitt af mörkum til að efla hópanda
taka afstöðu til umfjöllunar um jafnrétti kynjanna í íþróttaumfjöllun og íþróttamenningu almennt
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.