Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1549548822.88

    Þrívíð rúmfræði
    STÆR3ÞR05(SB)
    86
    stærðfræði
    þrívíð rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    SB
    Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis og keilusnið. Fylki og fylkjareikningur. Helstu efnisatriði eru: Þrívíð rúmfræði, margflötungar, vigrar í þrívídd og hnit þeirra, jöfnur og stikaform sléttu, línu og ferla, lausnir á jöfnum, horna- og fjarlægðarreikningar, rúmmálsreikningar og vigurfeldi, keilusnið, jöfnur þeirra og speglunareiginleikar. Helstu reiknireglur fylkja og notkun þeirra.
    STÆR3DF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sígildri rúmfræði og tamið sér stærðfræðileg vinnubrögð
    • keilusniðum og rúmfræðilegum eiginleikum þeirra
    • vigurreikningi í þrívíðu rúmi
    • helstu reiknireglum fylkja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla punkta, línur og fleti og leysa verkefni í þrívíðri rúmfræði
    • beita fylkjareikningi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra helstu sannanir sem koma fyrir í námsefni hans
    • fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og leikni sem hann býr yfir
    • teikna skýringarmyndir til að glöggva sig á vandamálum sem fyrir liggja
    • nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar
    • skilja og taka þátt í að hanna stærðfræðileg líkön sem sniðin eru að ákveðnum viðfangsefnum
    • skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni
    • nota fylki til að leysa hagnýt verkefni
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.