Í áfanganum er fjallað um almenn lífsskilyrði örvera og gerla, um veirur, ger- og myglusveppi.
Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma.
HCCP2UV04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
náttúrulegum heimkynnum örvera
flokkun örvera
smitleiðum örvera
vaxtarskilyrðum örvera og vaxtarkúrfu örvera
tegundum sjúdómsvaldandi bakería
á matarsjúkdómum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta áhættu við framleiðslu, framreiðslu og dreifingu matvæla
skilja hver eru grundavallaratriði við framleiðslu og dreifingu matvæla m.t.t. yfirfærslu örvera
meta ferskleika hráefnis með tilliti til gæða
koma í veg fyrir krossmengun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta kröfur til hráefna
meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
fyrirbyggja krossmengun
meta hvenær á að mæla hitastig
bregðast við frávikum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.