Áfanginn inniheldur þekkingu og þjálfun á grunnþáttum framreiðslustarfsins svo sem móttöku og samskipti við gesti. Rýmisnýtingu við borðauppröðum, þekkingu á öllum helstu hnífapörum, munnþurrkubrotum og dúkastærðum. Grunnþáttum borðlagningar og sölumennsku fyrir grunnmatseðla, samkvæmt fagvenjum og framreiðsluaðferðum. Annast frágang á búnaði að notkun lokinni. Þekkingu á fyrirskurðar-og eldsteikingaráhöldum ásamt aðferðum við helstu hráefni, vinnu í vínstúku áhaldaþekkingu og aðferðafræði. Áfanginn tekur til þekkingar á tölvunotkun við upplýsingaöflun og notkun forrita sem nýtast faginu við utanumhald, gerð HACCP- og stjórnunargátlista. Framreiðslumaður kann siðareglur fagsins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að velja lín, áhöld og glös fyrir mismunandi tækfæri
að raða upp veitingasal og aðlaga rýmið að fjölda gesta
að dúka borð samkvæmt faglegum hefðum
að undirbúa á borðlagningu og framreiðslu veitinga
að leggja á borð fyrir grunn matseðla með tilheyrandi vínum
að taka á móti gestum
að taka matar- og vínpantanir
að beita sértækum vinnubrögðum, verkfærum og tækjum
að ganga frá veitingasal samkvæmt faglegum og/eða stöðluðum hefðum/kerfum, HACCP og gátlistum
að framreiða frá bar marskonar veitingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
raða upp veitingasal og aðlaga gestafjölda að rými
dúka borð samkvæmt faglegum hefðum
undirbúa borðlagningu og framreiðslu veitinga
leggja á borð fyrir grunn matseðla með tilheyrandi vínum
taka matar- og vínpantanir
beita sértækum vinnubrögðum, verkfærum og tækjum
ganga frá veitingasal samkvæmt faglegum og/eða stöðluðum hefðum/kerfum, HACCP og gátlistum
framreiða frá bar
nýta tölvur í starfi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
umgangast fólk og hafa lipurð í mannlegum samskiptum
sinna gestum veitingahúsa
geta lagt á borð samkvæmt matseðli ásamt glösum fyrir þau vín sem fram verða borin
skipuleggja, útfæra og framkvæma grunnþætti í alhliða borðhaldi
geta skipulagt vinnusvæði
nota tæki og áhöld við fyrirskurð og eldsteikingu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.