Í áfanganum verður farið yfir 100 ára sögu kvikmyndarinnar, þróun hennar, helstu tímabil og einkenni þeirra skoðuð. Kynnt eru lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Skoðaðar verða valdar kvikmyndir sem hafa mótað hreyfimyndamiðilinn og breytt viðhorfi almennings til þeirra möguleika sem í honum búa. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Áhersla er lögð á umræður í tímum, hópverkefni og samvinnu í skriflegum verkefnum
SAGA2HÍ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kvikmyndafræðilegum hugtökum
kvikmyndasögu
skoðun kvikmynda
flokkun kvikmynda
gagnrýni kvikmynda
gerð og framleiðslu kvikmynda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa kvikmyndafræðitexta
leggja mat á kvikmyndaumfjöllun og borið saman við kvikmyndir
beita gagnrýnni hugsun
meta eigin rök og annarra
tjá sig og hlusta á aðra
tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina kvikmyndir á fræðilegan hátt
miðla skoðunum og fræðilegum athugunum á skýran
nota hugtök og aðferðir til að skilja og greint miðilinn
beita gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
bera saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
tileinka sér nýja þekkingu á markvissari hátt
skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.