Helstu markmið áfangans er að aðstoða nemendur við undirbúning fyrir inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun sem haldin eru árlega á vegum Háskóla Íslands. Einnig hentar áfanginn nemendum sem huga að námi í heilbrigðisvísindum á háskólastigi. Í áfanganum er lögð áhersla á upprifjun í líffræði, efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði. Einnig verður fjallað um siðferðisleg álitamál sem tengjast heilbrigðisvísindum og fá nemendur æfingu í að takast á við þau. Áfanganum er skipt upp í lotur eftir faggreinum og endar hver lota á stuttu prófi.
Á milli lota verður uppbrot og gestafyrirlesarar frá heilbrigðisgeiranum og/eða nemendur sem hafa stundað nám í læknisfræði eða sjúkraþjálfun koma í heimsókn. Þá verður skipulögð heimsókn á FSA og/eða heilbrigðisstofnum í einkageiranum.
Líffræði á 1., 2. og 3. þrepi. Efnafræði á 2. og 3. þrepi. Eðlisfræði á 1. og 2. þrepi. Stærðfræði á 2. og 3. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ferlum og grunnþáttum líffræði
ferlum og grunnþáttum eðlisfræði
ferlum og grunnþáttum efnafræði
ferlum og grunnþáttum stærðfræði
grunnþáttum siðfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að lesa og skilja texta/dæmi þar sem fyrir koma hugtök úr líffræði, eðlisfræði, efnafræði og stærðfræði
skipuleggja eigið nám og vinna sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa ýmsar þrautir og spurningar sem snúa að ofangreindu þekkingar- og leiknimarkmiðum
taka afstöðu gagnvart siðferðilegum álitamálum
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.