Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur efli færni sína á öllum sviðum lestrar og skoði ólíka texta út frá bókmenntalegu og málfarslegu sjónarmiði. Stefnt er að því að nemendur þjálfist í fjölbreyttri ritun og tjáningu og læri að beita fræðilegum hugtökum við umfjöllun, rökræður og samanburð ólíkra texta. Jafnframt er stefnt að því að nemendur verði færir um að nýta sér þekkingu sína og þjálfun við eigin textagerð. Í námi sínu í áfanganum fá nemendur tækifæri til að nota tölvu, handbækur og sem fjölbreyttust hjálpargögn. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
Grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum góðrar framsagnar og eðlilegrar framkomu við flutning texta
mismunandi málsniðum og sérkennum talmáls og ritmáls
helstu atriðum varðandi ritgerðarsmíðar
helstu hugtökum í bókmenntafræði
helstu hugtökum í bragfræði
íslenskri stafsetningu og greinarmerkjasetningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og tjá sig um fjölbreytta texta
skrifa texta á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt
ganga frá ritgerð á viðeigandi hátt í tölvu
nota handbækur og hjálparforrit varðandi stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta
beita hugtökum í bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir
beita hugtökum í bragfræði í umfjöllun um bundið mál
beita réttri stafsetningu og greinarmerkjasetningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
flytja stutta framsögu á skýran og áheyrilegan hátt ...sem er metið með... örfyrirlestri
skrifa stutta bókmenntaritgerð á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt og farið er að reglum um meðferð heimilda ...sem er metið með... ritgerð
túlka valin ljóð og átta sig á byggingu þeirra ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófi
fylgja reglum um stafsetningu og greinarmerkjasetningu við að koma frá sér rituðu máli ...sem er metið með... verkefnum, ritgerð, prófi
axla ábyrgð á eigin námi ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
taka virkan þátt í kennslustundum ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina.
Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verður: fyrirlestur, ritgerð, ýmiss konar verkefni (bæði munnleg og skrifleg, einstaklings- og hópverkefni), skriflegt próf í lok annar og mat á undirbúningi og þátttöku nemandans í kennslustundum á önninni.