Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1568818990.25

    Kynjafræði
    KYNJ2KY05(11)
    5
    kynjafræði
    Kynjafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    11
    Grunnáfangi í kynjafræði þar sem teknar eru fyrir birtingarmyndir og staðalmyndir kynjanna í fortíð og nútíð með áherslu á að greina stöðu kynjanna eins og hún er í dag víðsvegar um heiminn. Fjallað er um mikilvægi jafnræðis meðal borgara í lýðræðisþjóðfélagi. Í því sambandi verður unnið sérstaklega að greiningu á þeim menningarlega og félagslega mun sem einkennt hefur stöðu kynjanna í samfélaginu í gegnum söguna til dagsins í dag. Fjallað er rækilega um stöðu kynjanna á ýmsum sviðum samfélagsins allt frá fjölskyldulífi til stjórnmála. Leitað verður svara við því af hverju staða kynjanna er ólík og hvort að þörf sé fyrir breytingar. Nemendur fá þjálfun í beitingu kynjagleraugna á hin margbreytilegu svið mannlífsins.
    Félagsfræði/félagsvísindi á fyrsta þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum jafnréttismála
    • birtingamyndum kynjaskekkju í nærsamfélaginu
    • birtingamyndum kynjaskekkju frá alþjóðlegu sjónarhorni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka þátt í umræðum um algeng álitamál sem tilheyra kynjafræðinni
    • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna úr fjölbreyttum miðlum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skoða umhverfi sitt með gleraugum kynjafræðinnar
    • setja sig í spor annarra
    • bera virðingu fyrir ólíkum skoðunum
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem felst í því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru ýmiss konar einstaklings og hópaverkefni.