Fjallað verður um landafræðina sem fræðigrein, helstu hugtök og aðferðir. Stuttlega verður fjallað um kort og kortagerð, bauganet og tímamismun, fjarkönnun og nýtingu hennar. Mannkynið verður til skoðunar og ýmis hugtök tengd mannfjölda og búsetu verða reifuð. Fjallað verður um jarðfræði og veðurfræði, náttúruauðlindir, nýtingu þeirra, misskiptingu og misnotkun. Sérstaklega verður fjallað um vatn og vatnsnotkun, ýmsa orkugjafa, kosti þeirra og galla. Allt þetta verður svo sett í samhengi við íbúadreifingu jarðar. Atvinnuhættir koma einnig við sögu og verður sérstaklega litið til Íslands í því samhengi. Töluverð áhersla verður lögð á að nemendur geti tjáð hug sinn og taki afstöðu til ýmissa mála sem verið hafa í deiglunni síðustu árin. Af nógu er að taka í þeim efnum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllu sem viðkemur legu álfa og landa á jörðinni
grunnhugtökum varðandi kort og kortagerð. Hvaða gerðir eru til af landakortum og hvernig má nota þau, jafnt á ferðalögum og til að setja fram upplýsingar
öllum þeim hugtökum sem notuð eru við manntöl og mannfjölda. Hvað ræður t.d. fæðingar- og dánartölum, hvers vegna er fólk að flytja á milli landa o.s.frv.
þeim öflum sem eiga sér stað á jörðinni, bæði við landmótun og allt sem viðkemur veðri og veðurfræði.
hugtakinu auðlind og þekki alls kyns nýtingu þeirra, misskiptingu og jafnvel misnotkun
helstu auðlindum Íslands. Notkun þeirra og stýringu á nýtingu
helstu hugtökum varðandi ýmsa atvinnuhætti og helstu tegundir samgangna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og skilja texta þar sem hugtök landafræðinnar koma fyrir
merkja inn á heimskort öll lönd eða ríki sem þar eru
nýta landakort og það táknmál sem má sjá á þeim
lesa upplýsingar út úr allskyns þemakortum og nýta sér leiðir til að búa til slík kort
reikna tímamismun milli staða í heiminum
vinna upplýsingar og gera greinarmun á aðal- og aukaatriðum
vinna sjálfstætt við framkvæmd verkefna og geta útskýrt niðurstöður út frá verklýsingu eða fyrirmælum kennara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna að verkefnum tengdum landafræði
tileinka sér það orðfæri sem þarf til að taka þátt í almennri umræðu tengdri landafræði
sjá samhengi milli ýmissa mismunandi þátta, hvað er orsök og afleiðing og hvernig eitt hefur áhrif á annað
leggja mat á upplýsingar sem tengjast greininni á gagnrýninn hátt
koma þekkingu sinni á framfæri með gerð kynninga þar sem áhersla er á flutning nemandans
geta skýrt frá ýmsum málum úr heimsfréttunum og geta sett þau í samhengi við fræðigreinina
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.