Grunnáfangi í forritun þar sem nemendur fá undirstöðuþjálfun í æðra forritunarmáli. Fjallað er um helstu þætti í forritun, eins og inntak, úttak, breytur, tög, fylki, segð og gildisveitingar, forritun með skilyrðum, lykkjum og föllum. Í áfanganum er farið yfir grunn orðaforða forritunarmálsins og hugtök sem notuð eru og nemendur þjálfaðir í að finna lausnaraðferðir til að leysa verkefni. Nemendur læra að skipta forriti niður í einingar til að einfalda forritunina.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum forritunarmála
uppbyggingu eins æðra forritunarmáls
helstu grunneiningum forritunarmáls
gildi þróunarumhverfis til að þýða og þróa forrit
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa einföld keyrsluforrit
nota gagnaskipanir eins og skilyrði, lykkjur og föll
nota samþætt þróunarumhverfi til að þýða forrit
skissa upp hugmynd að forritunarverkefni
lesa kóða
aflúsa, breyta og prófa forrit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leiðrétta og endurbæta forrit
semja forrit til að leysa einföld verkefni
brjóta forrit upp í smærri einingar sem síðan vinna saman
beita gagnrýni og skapandi hugsun við lausnir verkefna