Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1584009578.87

    Viðskiptalögfræði
    LÖGF3VL05
    5
    lögfræði
    lögfræði, viðskipta
    for inspection
    3
    5
    Kynnt eru grundvallaratriði íslenskrar stjórnskipunar og réttarkerfis. Fjallað verður um grundvallarhugtök og fræðikerfi lögfræðinnar. Fjallað verður um hugtakið réttarheimild og allar helstu tegundir réttarheimilda sem beitt er í íslenskum rétti. Áhersla er lögð á kynningu á almennum lögum með áherslu á lög sem tengjast viðskiptalífinu. Áfanginn miðar að því að gefa nemendum innsýn í umfang löggjafar á þessu sviði.
    FJÁR2FL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallaratriðum í sambandi við löggjöf og aðrar réttarheimildir
    • meginatriðum í íslenskri stjórnskipan
    • meginreglum í íslensku réttarfari og helstu farvegi mála í gegnum dómstóla og aðrar stofnanir réttarkerfisins
    • helstu hugtökum sem lúta að réttindum og skyldum þjóðfélagsþegna
    • almennum reglum sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga
    • lögum um lausafjárkaup og fasteignakaup
    • helstu lögum og reglum er varða kröfur og skuldbindingar
    • helstu lögum um réttindi og skyldur á vinnumarkaði
    • hinum ýmsu rekstrarformum í atvinnurekstri hvað snertir ábyrgð eigenda og fleira
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hagnýta sér netið til öflunar upplýsinga
    • beita þekkingu sinni í að meta forsendur og túlkað niðurstöður dóma vinna sjálfstætt
    • greina og setja fram rökstudda lausn við lögfræðilegum álitamálum sem sett eru fram í raunhæfum dæmum
    • skilja notkun ákveðinna lykilhugtaka lögfræðinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í hugsun og vinnubrögðum
    • útskýra mikilvægi lögfræðinnar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og samfélag
    • nýta sér lögfræðilega þekkingu til lausna í sérhæfðum og raunhæfum verkefnum
    • tjá sig í ræðu og riti um lögfræðileg málefni
    • beita upplýsingatækni við öflun upplýsinga og lausn verkefna
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
    • fylgja röksemdafærslu í máli og texta