Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á samfélögum nær og fjær svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hugsun og athöfnum einstaklingsins og keppt er að því að nemendur öðlist skilning á skipulagi eigin samfélags og annarra. Meginmarkmið áfangans er að nemendur átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á þá og hvernig þeir geta haft áhrif á samfélagið.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengustu hugtökum félagsvísinda
helstu áhrifavöldum í félagsmótun s.s. fjölskyldu, skóla, félaga og fjölmiðla
mikilvægustu félagslegu festum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar s.s. valdi, lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
íslenskum vinnumarkaði s.s. atvinnuþátttöku, launajafnrétti og hagsmunasamtökum
samstarfi þjóða á alþjóðavettvangi s.s. innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og á sviði alþjóðlegra viðskipta
réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
Kynbundnu ofbeldi og hvernig það birtist í nánum samböndum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt
lesa og skilja áhrif félagslegra festa í samfélaginu
greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingar geta haft í samfélaginu
gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélaga
setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma
tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál
geta lagt mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra
Vita hvenær og hvert má leita eftir aðstoð vegna kynbundins ofbeldi