Fjallað verður um leiklistarsögu í grófum dráttum frá tímum Forngrikkja til dagsins í dag. Ítarleg umfjöllun verður um vestræna leiklistarsögu 20. aldar þar sem nemendur fá kynningu á helstu leikskáldum og áhrifavöldum leiklistarsögunnar. Þróun sögunnar verður skoðuð út frá viðmiðum og gildum samfélagsins á hverjum tíma. Einnig verður fjallað um íslenska leiklistarsögu og möguleg framtíðarsaga hennar skoðuð í fyrirlestrum og umræðutímum með leikhússtjóra LA.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu tímabilum leiklistarsögunnar og áhrifavöldum innan hennar
hvernig tíðarandi, viðmið og gildi hafa haft áhrif á þróun leiklistarinnar
íslenskri leiklistarsögu, þróun hennar og mótun og helstu áhrifavöldum
þeim grunni sem nútímaleikhús er byggt á og hvert það stefnir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig um helstu tímabil leiklistarsögunnar og áhrifavalda hennar í töluðu og rituðu máli
greina af ígrundun áhrif viðhorfa og gilda samfélagsins á leikhús
afla sér heimilda um leiklist og leiklistarsögu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja eigin hugmyndir um leikhús við leiklistarsöguna og geta tjáð sig um þær á ígrundaðan hátt
gera sér grein fyrir þróun leiklistar í gegnum árin sem og skilning á ábyrgð sinni sem listamanns á framtíðarsöguna
fjalla um helstu leikskáld og leikhúsfræðimenn 20. aldarinnar, íslenska sem erlenda
nýta sér skilning sinn í eigin vinnu og sköpun
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.