Í áfanganum verður fjallað um og farið í alla helstu verkferla leikstjórans. Þar má nefna greiningu handrita og persóna, skipulag æfinga og samvinnu við leikara og aðra listræna stjórnendur. Áhersla er lögð á mikilvægi heildarinnar, bæði á sviðinu og utan þess.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu undirstöðuatriðum í greiningu leikverka og persóna þeirra
ólíkum aðferðum við nálgun hugmynda og mismunandi verka
ábyrgð og hlutverki leikstjórans
skipulagi og undirbúningi æfingaferlisins
samvinnu við aðra listræna stjórnendur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna senur út frá ólíkri aðferðafræði og nálgunum
beita faglegu tungumáli leikhússins á skilvirkan hátt
greina leikverk og persónur og taka sjálfstæðar ákvarðanir í sköpun sinni
vinna með leikurum og öðlast færni í að stuðla að því að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta á faglegan og jákvæðan hátt skilað af sér heilstæðri sýningu í samvinnu við aðra
sameina ólík listform og hugmyndafræði í eina heild
rökstyðja listrænar ákvarðanir sínar
miðla á skilmerkilegan hátt hugmyndum sínum og sýn til samstarfsfélaga
greina frá helstum kenningum og aðferðum sem hann hefur tileinkað sér á faglegan og skýran hátt
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.