Í áfanganum verður farið í grunnþætti verkefnastjórnunar og framleiðslu. Nemendur draga saman alla þá þekkingu, hæfni og leikni sem þeir hafa tileinkað sér í náminu og vinna eigið sviðsverk frá grunni. Verkið verður síðan sýnt í lok annar í Samkomuhúsinu á Akureyri. Áhersla verður lögð á að sýn og eldmóður nemendans fái að njóta sín í verkefninu og hann sýni fram á öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkefnastjórnun í leikhúsi
eigin sýn og styrkleikum í sviðslistasköpun
öllum þeim þáttum sem koman saman í uppsetningu sviðslista
verkferlum í tengslum við styrkumsóknir og lokaskýrslur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna að eigin sviðslistasköpun
framkvæma og fylgja verkefni frá fyrstu hugmynd að lokasýningu
miðla færni sinni og kunnáttu til annarra
umbreyta eldmóð sínum í agaða sköpun með skýra heild
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði, aga og frumleika í sköpun og vinnu
leiða hugmyndavinnu og framkvæmd sviðslistaverkefnis
geta tjáð sig á uppbyggilegan og skilvirkan hátt um eigin styrkleika og veikleika í sviðslistasköpun
setja sér markmið, gera verkáætlanir og fylgja þeim
tjá sig í rituðu og töluðu máli um framleiðslu og skipulag á framkvæmd sviðlist
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.