Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1589794155.2

    Samsköpun
    LEIK3SA05(MA)
    9
    leiklist
    Grunnþættir í leikrænni tjáningu 1
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    MA
    Í áfanganum verður farið í samsköpunaraðferðir leikhússins þar sem nemendur læra að vinna í hópi að sameiginlegu markmiði. Málamiðlun og samskiptahæfni eru í fyrirrúmi, þar sem nemendur verða að komast að sameiginlegri niðurstöðu um þau skapandi verkefni sem fyrir þá eru lögð. Nemendur læra að nýta og meta eigin styrkleika og annarra, sem og hópsins sem heildar. Þekktar aðferðir og hugmyndfræði samsköpunarleikhúss verða kynntar og skoðaðar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum og hugmyndafræði í samsköpunaraðferðum leikhússins
    • nýjum og ólíkum aðferðum til frumsköpunar
    • samskiptahæfni og málamiðun í samvinnu
    • þróun verkefnis með öðrum frá hugmynd til sýningar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í hópi að sameiginlegu markmiði
    • leggja mat á og nýta eigin styrkleika sem og annarra
    • skipuleggja og framkvæma frumsköpun í sviðslistum
    • skilja og greina listræna vídd sviðslistaformsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja mat á hvað er persónuleg skoðun annarsvegar, hvað er faglegt mat hinsvegar, og geta greint þar á milli
    • nota samsköpunaraðferðir við mótun á sviðslistum
    • greina hvað hefur merkingu út frá sjónarhorni samfélagsins og hvað ekki
    • nota skapandi og sjálfstæð vinnubrögð
    • tjá skoðanir sínar og hugmyndir á uppbyggjandi og faglegan máta og af ígrundun
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.