Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna nemendum hinar ýmsu aðferðir og möguleika ritlistarinnar. Unnið verður með ýmiskonar stílbrögð og texta og skoðað hvernig má endurspegla samfélagið í textasmíðum. Farið verður yfir uppbyggingu handrita sem og frásagna, persónusköpun og framvindu. Megináherslan er lögð á að nemendur æfist í ritun skapandi verka.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í ritlist
ólíkum leiðum sem hægt er að nýta sér í skrifum
einkennum mismunandi tegunda ritsmíða
hvernig ná má fram ólíkum blæbrigðum/hughrifum í ritsmíðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að taka eftir eigin hugmyndum og þróa þær af frjálsri tjáningu
þróa sinn eigin stíl af ígrundun
byggja upp texta með áhrifaríkum persónum og framvindu
finna hugmyndakveikjur í eigin lífi og samfélaginu
taka við gagnrýni á eigin verk og vinna úr henni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
samtvinna sköpunarkraft og sjálfsaga í vinnubrögðum sínum
skrifa ljóð, leiksenur, smásögur og söngtexta
geta greint og lagt mat á eigin textavinnu sem og annarra á uppbyggilegan og skilvirkan máta
greina mismunandi stíla í ritlist
tjá sig í töluðu og rituðu máli um uppbyggingu texta
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá