Áfanginn veitir víðtæka grunnþekkingu í verkfærum leikarans bæði í spunavinnu og forskrifuðum texta. Nemendur fá innsýn í allar helstu aðferðir spunavinnunnar sem og aðferðir Stansislavskis og fleiri áhrifamanna leiklistarinnar. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð, skapandi hugsun og jákvæðni í samvinnu við aðra. Áfanganum lýkur með opnum tíma þar sem valdar senur verða sýndar fyrir framan hóp af áhorfendum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnu leikarans frá fyrsta samlestri að sýningu
aðferðum Stanislavskís
gildi góðs undirbúnings í persónusköpun
mikilvægi þess að ákveða lokaútkomu vinnunar ekki fyrirfram
gildi mistaka í leiklist
gildi mótleikarans og samstarfsins við hann
hvernig uppbygging atriða skiptist upp í fjölmargar kringumstæður og aðstæður
því hvernig áhorfandinn skynjar þær upplýsingar sem honum eru gefnar
hvað felst í heilstæðri persónusköpun á sviði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja sanngjarnt og faglegt mat á eigin vinnu og annarra
taka listrænar ákvarðanir um hönnun og uppbyggingu persóna og atriða
beita spuna og öðrum leiktæknilegum aðferðum við sköpun leikpersónu
sýna sjálfstæð, öguð og einbeitt vinnubrögð
vinna sjálfstætt og í hópi við persónusköpun
greina senur og persónur út frá viðurkenndum aðferðum leiklistarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita jákvæðri hlustun í sköpun á atriðum
taka við uppbyggilegri gagnrýni og sjá mistök sín sem tækifæri
treysta flæði vinnunnar til að bera sig að lokapunkti
læra að skynja og lesa hið ósagða í vinnu leikarans
beita verkfærum leikarans bæði í spuna og forskrifuðum senum
beita einbeitingu og aga í hugmyndavinnu og allri vinnu sem fer fram á leiksviði
nota sjálfstæð vinnubrögð
beita ólíkum aðferðum við sköpun persóna
afla sér upplýsinga og innblásturs í formi rannsóknarvinnu
greina leikverk og senur
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.