Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1591608309.04

    Bókmenntir síðari alda
    ÍSLE3BS05
    95
    íslenska
    bókmenntir síðari alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er viðfangsefni íslenskar bókmenntir frá 20. öld til nútímans og félagsleg málvísindi, þ.m.t. máltaka barna, íslenskar mállýskur og málsnið mismunandi hópa.
    ÍSLE3BF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðarsmíð
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og íslenskum bókmenntum frá síðustu öld til nútímans
    • ýmsu er varðar mismunandi málnotkun
    • grundvallaratriðum í máltöku barna
    • nokkrum félagslegum viðfangsefnum tungumála
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta síðari tíma
    • átta sig á mismunandi málsniði
    • átta sig á þeim mun sem getur verið á máli mismunandi hópa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
    • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
    • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum