Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1601466265.58

    Umhverfisstjórnun, grænfánaverkefni
    UMHV1GF03
    11
    umhverfisfræði
    Grænfánaverkefni
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum kynnast nemendur verkferlum umhverfisstjórnunar og læra að nýta sér þætti umhverfisstjórnunarkerfis sem verkefnið Skólar á grænni grein byggir á. Nemendur ganga þannig í gegnum sjö skref umhverfisstjórnunar, sem er alþjóðlega viðurkennd aðferð og notuð um allan heim. Þau eru eftirfarandi: 1) að stofna umhverfisnefnd, 2) að meta stöðu umhverfismála, 3) að útbúa aðgerðaráætlun í umhverfismálum, 4) að sinna eftirliti og endurmati, 5) að búa til námsefni og tengja við aðalnámskrá, 6) að upplýsa og fá aðra með og 7) að semja umhverfissáttmála og umhverfisstefnu. Nemendur velja sér jafnframt þema til að vinna með af þeim þemum sem í boði eru innan verkefnisins. Áfanginn verður í grunninn nemendastýrður. Kennari hefur utanumhald með áfanganum og kemur að honum sem leiðbeinandi og aðstoðarmaður en nemendur sjá fyrst og fremst um alla framkvæmd. Við áfangann verður hugtakið geta til aðgerða haft að leiðarljósi. Í getu til aðgerða er lýðræðislegum vinnubrögðum beitt í námi svo nemendur geti haft áhrif á hvernig, hvenær, hvar og hvað þeir læra. Einnig felst í því að virkja nemendur til aðgerða innan skólans eða síns nærsamfélags. Í áfanganum geta nemendur því beitt áhrifum sínum á aðgerðamiðaðan hátt í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og jafnvel nærsamfélags. Nemendur fá jafnframt dýpri innsýn inn í fjölmörg málefni sem tengjast sjálfbærni og umhverfismálum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umhverfisstjórnun
    • stöðu umhverfismála
    • sjö skrefum umhverfisstjórnunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með sjö skref umhverfisstjórnunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita sjö skrefum umhverfisstjórnunar
    • hafa áhrif á nærsamfélag
    Símat