Nemendur öðlast þekkingu á undirstöðuatriðum í reglunartækni sem notuð er við stjórn og við eftirlit með ýmsum vélbúnaði ásamt undirstöðuatriðum mælitækninnar, þekkja hugtök og geta útskýrt helstu mæliaðferðir og uppbyggingu algengra mælitækja.
EÐLI2AO05, STÆF2AM05, RAMV1HL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu grundvallarhugtökum mæli- og reglunartækninnar
þeim lögmálum sem liggja til grundvallar helstu mæliaðferðum
uppbyggingu algengra mælitækja sem notuð eru í reglunartækni
eiginleikum mismunandi reglunaraðferða og notkunarsviði þeirra
uppbyggingu og notkun á reglum sem nota orkuformin rafmagn, þrýstivökvi og þrýstiloft
eiginleikum mismunandi reglunartaka út frá hugtökunum mögnun, tímastuðull og dátími
gerð og uppbyggingu gangráða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa teikningar af reglum og gera sér grein fyrir heildarmyndinni
stilla af PID stilli með viðurkenndum aðferðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir hvaða áhrif stillingar á P, I og D gildum hafa
útskýra hvernig breyting einni eðlisstærð hefur áhrif á aðra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.