Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1604585435.4

    Kynheilbrigði
    SÁLF1KH05
    11
    sálfræði
    Kynheilbrigði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um kynheilbrigði í víðum skilningi. Fjallað verður um hvernig tilfinningar, samskipti og samfélag hafa áhrif á hugmyndir okkar og væntingar til kynlífs. Meðal umfjöllunarefnis í áfanganum er hinsegin fræðsla, ofbeldi, sjálfsmynd, líkamsvirðing og samskipti. Einnig verður fjallað um hvaða kröfur eru gerðar til okkar sem kynvera, hverjar hugmyndir samfélagsins eru um eðlilega kynhegðun, hvar mörkin séu milli kynlífs og nauðgunar og hver dregur línuna. Að lokum verður fjallað um forvarnir og hvernig þeim skuli háttað.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökunum kynheilbrigði, kynferðisþroska, kynvitund, kynhneigð, kynlífi, klámi og klámvæðingu
    • algengustu vandamálum sem upp geta komið í tengslum við kynlíf og frjósemi
    • áhrifum sjálfsmyndar og tilfinninga á kynlífshegðun
    • ólíkum sjónarhornum gagnvart kynlífi og kynheilbrigði
    • því hvaðan við fáum upplýsingar um hvernig eigi að haga sér í kynlífi og kynferðislegum samskiptum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá skoðanir sínar
    • þekkja eigin líkama og langanir
    • þekkja eigið viðhorf til kynlífs
    • geta fjallað um kynlíf og kynheilbrigði af virðingu og með skilningi
    • nota viðeigandi samskipti sem einkennast af virðingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
    • spyrja spurninga og hluta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
    • láta skoðanir sínar í ljós
    • vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi.