Markmið áfangans er að gera upp námsferil nemandans og undirbúa hann fyrir útskrift. Nemendur vinna með útskriftarbók um ferilinn í skólanum og undirbúa líf og starf utan skólans. Nemendur þjálfast í almennu heimilishaldi, s.s. að setja í þvottavél og versla inn, þannig er unnið að undirbúningi sjálfstæðrar búsetu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað þarf að hafa í huga við sjálfstæða búsetu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sinna ýmsum heimilisverkum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta rekið heimili í sjálfstæðri búsetu
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá