Starfsnám með áherslu á störf á almennum vinnumarkaði og skólalok
STAR1SV03
39
starfsnám
skólalok, vinnumarkaður
Samþykkt af skóla
1
3
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandanum séu kynnt störf á almennum vinnumarkaði. Þar sem um lokaáfanga er að ræða er farið yfir skólalok og þá möguleika sem bjóðast nemandanum að námi loknu í samstarfi við félags- og búsetusvið sveitarfélagsins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
starfi á almennum vinnumarkaði, sem fyrir vali verður
að námi við þennan skóla fer að ljúka og hvaða möguleikar eru að honum loknum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sinna ákveðnu starfi út frá sínum forsendum
skoða framtíðarmöguleika að námi loknu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
víkka reynslu sína og upplifun á þátttöku í atvinnulífinu
taka ákvörðun um hvað tekur við eftir útskrift
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá