Í áfanganum er unnið með tímahugtök, tímaskyn, vikudaga, mánaðarheiti og merkisdaga. Stefnt er að því að nemendur þroski tímaskyn sitt og þekki helstu merkis- og hátíðisdaga
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tímahugtökum, dagsetningum og merkisdögum
heiti vikudaga og mánaða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja áætlunum varðandi tíma og nýta sér klukku og dagatal
temja sér stundvísi og mæta á réttum tíma
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa eigin stundatöflu
lesa á klukku
lesa úr tímatöflum (t.d. strætó, bíó)
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá