Bílprófsundirbúningur með áherslu á undirbúning fyrir bóklegt bílpróf
BÍLP1BB02
2
Bílprófsundirbúningur
bóklegt bílpróf
Samþykkt af skóla
1
2
Þátttaka í umferð er órjúfanlegur hluti af lífi flestra einstaklinga. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera virkir og öruggir þátttakendur í umferðinni. Sömuleiðis að nemendur átti sig á hve mikilvægt það er að vera góður vegfarandi og hversu mikil áhrif þeir geta haft í umferðinni. Unnið verður með efnið á fjölbreyttan hátt og áhersla er lögð á að nemendur læri meðal annars umferðarmerkin, reglurnar og góða umferðarhegðun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skyldum og réttindum vegfarenda og það að vera í umferðinni krefst fullrar athygli
umferðarmerkjum og umferðarreglum
þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera góður vegfarandi í samfélagi við aðra
hversu mikil áhrif vegfarendur geta haft í umferðinni
umburðarlyndi, tillitssemi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í umferðinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja skyldur sínar og réttindi í umferðinni
þekkja umferðarmerkin og hvað þau þýða
þekkja algengustu umferðarreglur
meta hættur í umferðinni og hvað á að gera þegar eitthvað kemur upp á
efla sjálfsmynd sína sem athugull, umburðarlyndur og tillitssamur vegfarandi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
verða virkur, ábyrgur og sjálfstæður vegfarandi í umferðinni
uppfylla skyldur sínar og réttindi í umferðinni
meta hættur í umferðinni á réttan hátt
nýta sér umferðarmerki og umferðarreglur
eiga góð samskipti við aðra í umferðinni
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá