Nemendur öðlast fullnægjandi þekkingu á rafkerfum skipa með allt að 750 kW aðalvél til að þeir geti gegnt stöðu yfirvélstjóra og tileinkað sér upplýsingar með lestri teikninga af rafkerfi slíkra skipa. Sérstök áhersla er lögð á tengingar riðstraumsvéla og fylgibúnaðar þeirra í gegnum rofabúnað og rafeindabúnað, s.s. mjúkræsi og tíðnibreyti auk þess sem veitt er
þjálfun í framkvæmd bilanaleitar með mælitækjum.
RAMV2MJ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og hlutverki segulrofa og grunntengingum hans
gerð, uppbyggingu og vinnumáta þriggja fasa riðstraumsrafala og mótora
samfösun riðstraumsrafala
tengingum og varnarbúnaði mótora og rafala
ræsibúnaði rafmótora með Y/D ræsi og mjúkræsi
hraðastjórnun riðstraumsmótors og tengingu við net
mismunandi möguleikum til hraðastýringa þriggja fasa riðstraumsmótora
virkni og uppbyggingu einfasa riðstraumsmótora og notkunarsvið þeirra
uppbyggingu riðstraumstöflu í skipum, búnaði og skilyrðum til samfösunar þriggja fasa rafala við raforkunet
raflagnateikningum lítill skipa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna út afl, tap og nýtni í ein- og þriggja fasa mótorum og rafölum
nota hefðbundinn samfösunarbúnað við samfösun
velja og stilla varbúnað fyrir rafmótora
lesa út úr einföldum raflagnateikningum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja og stilla riðabreyta
tengja þriggja fasa mótor rétt miðað við spennu (D/Y)
fasa rafala inn á net og deila raun- og launálagi
finna bilun í riðstraumsmótor, fasarof eða útleiðslu
tengja þriggja- og einfasa skammhlaupsmótora við net
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.