Í áfanganum lærir nemandinn MIG/MAG-suðu í efnisþykktum 2 – 6 mm og TIG-suðu í efnisþykktum 1 – 3 mm. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnfærni og þekkingu á suðuaðferðum, að hann þekki mun á þeim, kostum þeirra og göllum og geti soðið stál, ryðfrítt stál og ál. Farið er yfir öryggisbúnað s.s. hlífðarfatnað og hlífar, hættur og helstu varúðarráðstafanir vegna þeirra.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
hlutverki hlífðargass og réttum stillingum
öllum hlutum suðubyssu og leiðara fyrir MIG/MAG og TIG
virkni suðutækja, drifbúnaði og pólun
virkni viðnámsspólu í MIG/MAG og TIG suðutækjum
ýmsum gerðum kveikinga í MIG/MAG og TIG-suðuvélum
brunahættu vegna straumleiðara
helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna
hlífðarfatnaði og hlífum við vinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla búnað til suðu
setja rúlluvír í suðutæki
nota TIG- og MIG/MAG suðu til að sjóða saman hluti í ýmsum suðustöðum s.s. PA-BW, PA-FW og PF-FW
gegnumsjóða þunna stálplötu öðru megin frá
nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stilla suðutækin, þ.e. straum, vírhraða, spennu og viðnám
velja rétta spíssa
stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
meta algengustu suðugalla og greina orskakir þeirra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.