Nemandinn öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fær þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Hann þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemandinn öðlast þekkingu og skilning á hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Kynnist hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fær þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga.
RAMV2MJ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum stafrænnar tækni
grunnrökrásahliðum, OR, AND og NOT
rökrásahliðum NOR og NAND
hvernig hægt er að nota NOR og/eða NAND hlið til að fá fram grunnvirknina, OR, AND og NOT
mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal
samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL)
grunnskipunum í C og C++ forritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa virkni einfaldra rökrása
hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið
tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum
teikna stigarit eftir: a) formúlu, b) segulliðarás c) textalýsingu
skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum
nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (Boolean) formúlur
setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum
tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu
forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum
forrita einfaldar örgjörvarásir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.