Þessi áfangi fjallar um grundvallaruppbyggingu og eðli riðstraums og þau lögmál og hugtök
sem þar eiga við. Nemendur öðlast þekkingu og færni við að beita vektoramyndum og útreikningi í riðstraumsrásum og öðlast þannig skilning á orsökum og áhrifum fasviks í riðstraumsrásum bæði, einfasa og þriggja fasa, ásamt því að öðlast betri skilning á raforkukerfum og geti annast rekstur þeirra.
RAMV2SR04, STÆF2VH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum riðstraumsfræðinnar
fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess
notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum
notkun hornafalla til að reikna út stærðir í vektoramyndum
þrískiptingu afls í riðstraumsrásum
aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi
framkvæma útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
finna orsök óeðlilegs fasviks í skipum
reikna út stærðir þétta sem þarf til að leiðrétt fasvik
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.