Lífsleikni með áherslu á einstaklinginn og nærsamfélagið
LÍFS1EN01
106
lífsleikni
einstaklingurinn, nærsamfélagið
Samþykkt af skóla
1
1
Markmið áfangans er að kynna nemandanum aðstæður og umhverfi ungs fólks í fjölbreyttu samhengi. Áhersla verður lögð á að nemandinn kynnist helstu tilboðum og tækifærum til afþreyingar í nærsamfélaginu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig afþreying er í boði hverju sinni og hvernig hægt er að taka þátt ef vilji er fyrir hendi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér þau tækifæri sem eru hverju sinni til að njóta þeirrar afþreyingar sem í boði er
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auðga lífið með því að geta sótt afþreyingu/viðburði í nærsamfélaginu hverju sinni
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá