Nemendur eiga með hjálp teikninga og upplýsinga að öðlast dýpri þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta, hvernig þeir starfa, geta metið ástand þeirra. Í þessum áfanga er fjallað um ræsiloft og ræsiloftskerfi stórra tvígengisvéla einstaka hluti þeirra og öryggisþætti, afgaskerfi, skólp- og sorakerfi, sjókerfi og ferskvatnskerfi til almennra nota. Fyrirkomulag í vélarrúmi og austurskiljur. Fjallað er um legur, þ.m.t. hvítmálmslegur, uppbyggingu og gerð þeirra. Fjallað um krafta í bulluvélum, um sveiflumyndun í vélum og vélakerfum, um eigin tíðni, um gerð og hlutverk dempara og eftirlit með þeim, um byggingu meðalhraðgengra og hraðgengra dísilvéla og ýmis rekstraratriði varðandi svartolíubrennslu og gangtruflanir. Í hinum verklega þætti er áhersla lögð á eftirfarandi: Keyrslu vélarrúms þjálfuð viðbrögð við gangtruflunum (gert í vélarrúmshermi). Skilvindur, viðhald á þeim og rekstur. Þrýstivökvakerfi og vökvagíra svo og eldsneytiskerfi háþrýstivökvakerfi spilkerfi þar sem glussi er nýttur til framdriftar. Mismunandi gerðir glussa-spilkerfa. Kröfur flokkunar félaga til ýmiskonar vélabúnaðar kynntar.
VÉLS2TK04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu ræsiloftskerfa og öllum helstu hlutum þess, þar á meðal tveggja þrepa loftþjöppu, ræsilofthylki með öllum lokum og allan annan búnað sem tilheyrir slíku kerfi til gangsetningar á vélum
þeim kröfum sem flokkunarfélögin gera til hinna ýmsu kerfa í vélarúmum skipa
þeim mismun á stjórnkerfum og öruggum stjórntökum skips sem annarsvegar hafa skipti skrúfu og hinsvegar eru snarvend með fasta skrúfu
öllum helstu kerfum vélarúms sem nauðsynleg eru til keyrslu brunavéla, meðhöndlun á olímenguðum austri og búnað til framleiðslu á ferskvatni
uppbyggingu stórra tvígengisvéla og eldsneytiskerfum slíkra véla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera stóra skipavél klára fyrir ræsingu, hafa með fullnægjandi hætti uppfyllt alla þætti sem að öryggismálum snúa
finna bilanir sem upp geta komið í ræsiloftskerfi vélar og lagfært
ræsa ferskvatnseimara og vera fær um að átta sig á hvort eimarinn vinni með þeim hætti sem vera skal
ræsa hin ýmsu kerfi í vélarúmi skips svo sem eldsneytis skilvindur, leggja mat á hvort kefin vinni með eðlilegum hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra mismunandi loftræsibúnað dísilvéla
standa vakt í vélarrúmi og bregðast við þeim aðvörunum sem aðvörunarkerfið gefur til kynna að lagfæra þurfi
draga ályktun um ástand búnaðar útfrá mæliaflestrum og sýna frumkvæði sem vélstjóri til lagfæringa ef nauðsynlegt er
útskýra fyrirkomulagsteikningar í vélarrúmi og rörateikningar mismunandi kerfa
útskýra ýmis mikilvæg hönnunar og rekstraratriði sem varða brennslu svartolíu í dísilvélum með tilliti til byggingar vélarinnar, skolloftskerfisins, eldsneytis-, kæli- og smurolíukerfisins
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.