Megináhersla er lögð á nemandinn öðlist færni og þekkingu á vélbúnaði með verkefnavinnu og greiningu mældra niðurstaðna. Sérstök áhersla er á varmafræði, varmajöfnuð og fræðilegar rannsóknir á aflfærslu til framdriftar skipa. Nemandinn þjálfast í rekstri vélkerfa með því að gera varmafræðilegar athuganir og vinna úr þeim. Einnig er unnið að rannsóknum á varmaskiptum. Nemandinn á að nýta sér námsefni undanfara og áunna fagþekkingu til að vinna verklegar æfingar og tilraunir sem hafa það hlutverk að auka skilning á einstökum þáttum fræðigreinarinnar.
KÆLI2VK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nýtni og afldreifingu miðflóttakraftsdælu
dælukennilínum, mótstöðukennilínum og stjórnun rúmtaksstreymis fyrir miðflóttaaflsdælu
rannsóknum á varmafræðilegum eiginleikum varmaskiptis
varmajöfnuði dísilvéla
álagslínuriti aðalvélar skips
skrúfulínuriti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota díagrammrannsóknir til að greina bilanir í dieselvélum
gera varmajöfnuð á dieselvél og leggja mat á niðurstöður
lesa úr niðurstöðum varmajöfnuðar og varmaskipta vélbúnaðar
setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi
afla upplýsinga um ástand lofttemprunarkerfa og vinna úr þeim
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til
setja fram helstu atriði æfingarinnar og niðurstöður í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit
draga ályktanir af niðurstöðum rannsóknaræfinga og gera tillögur að úrbótum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.