Nemendur kynnast olíum og olíuvörum sem notaðar eru við rekstur aflvéla skipa, s.s. brennsluolíu, smurolíu, smurefni og leysiefni. Nemendur þjálfast í notkun mælitækja og efna til að gera prófanir á smurolíu, kælivatni og ketilvatni og afla þannig upplýsinga til að leggja mat á ástand og gæði vökvanna. Skoðað er bruna- og blossamark olíu, seigjumælingar á olíu, mælingar á basatölu olíu og vatnsmagni í olíu. Fjallað er um fast og fljótandi eldsneyti úr kolefnissamböndum. Vinnsla á olíu er kynnt og mælikvarðarnir oktantala, setantala og dísilindex um brunaeiginleika eldsneytis. Einnig er fjallað um helstu eiginleika ketil- og kælivatns, hvað þarf að varast og hvers vegna.
VÉLF2VE04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eldsneytisnotkun, orkutapi og orkunýtingu.
eldsneytisgerðum, olíutegundum og staðbundnum einkennum olíu og oktantölu, setantölu og dísilindexi.
fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna.
tæringarvörnum ferskvatns- og sjókerfa.
útfellingum og áhrifum þeirra.
helstu eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla.
hvernig afla má upplýsinga um ástand smurolía og smurefna með mælitækjum.
hvernig má greina ástand kæli- og ketilvatns og bregðast við frávikum.
hvernig má setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina og meta ástand eldsneytis, smurefna og kælivökva út frá niðurstöðum sérhæfðra prófana.
gera mælingar og tilraunir með smurefni og kælivökva og skrá niðurstöður skilmerkilega.
halda utan um mæligögn á öruggan máta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra staðbundin einkenni olíu og gera grein fyrir vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess.
taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga gefa tilefni til.
meta upplýsingar, t.d. samanburð mældra gilda við eðlilegt eða æskilegt ástand.
setja fram efni og niðurstöður verkefna í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit og ályktanir sem dregnar eru af niðurstöðum mælinga og tilrauna.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.