Áhersla er lögð á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Æfingar eru sniðnar að áhuga, hæfni og getu hvers og eins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hreyfa sig miðað við eigin færni og getu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
njóta hreyfingar með mismunandi aðferðum
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá