Í áfanganum kynnast nemendur bakstri á sem fjölbreyttastan hátt. Farið er yfir það hvaða áhöld og tæki eru nauðsynleg við bakstur sem og öryggisþætti í eldhúsi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að fara eftir einföldum sjónrænum uppskriftum og nýta viðeigandi áhöld
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka þátt í bakstri
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
baka sér til ánægju
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá