Stærðfræði daglegs lífs með áherslu á grunnþættina fjóra
STÆF1AS02
14
Stærðfræði
frádráttur, margföldun og deiling, samlagning
Samþykkt af skóla
1
2
Í áfanganum verður unnið með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Lögð verður áhersla á grunnþætti stærðfræðinnar, samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Unnið verður að því að auka sjálfstraust og sjálfstæði nemanda í stærðfræði þannig að þeir geti með góðu móti unnið nokkuð sjálfstætt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum stærðfræðinnar, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta stærðfræðikunnáttu sína við lausn viðfangsefna daglegs lífs
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá