Áhersla á að nemandinn þroski hæfileika sína til sköpunar og fái að njóta sín við frjálsan útsaum. Nemendur teikna eigin munstur og útfæra, læra að frjáls útsaumur getur verið góð afþreying og kallað á félagslega samveru. Færni ræður för.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum útsaum s.s. krosssaum og fl. tegundum
tilfinningu fyrir garninu, þræða nál og ganga frá og skipta um spotta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka sköpun sína og sjálfstraust við verkefnið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ganga snyrtilega frá verkefninu - setja það upp í púða, ramma inn eða teppi
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá