Að nemendur læri grunnatriði í fatasaum og að vinna við saumavél. Skilji vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík eða öðru auðveldara verkefni. Æfist í notkun saumavélar s.s. kveikja og slökkva og nota fótstig.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að þekkja saumavélina og hvernig hún virkar, kveikja, slökkva og fótstig
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka upp snið, leggja á efni og klippa það sem á að sauma
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sauma sem mest sjálfstætt og af vandvirkni
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá