Skartgripagerð með áherslu á hugmyndavinnu og sköpun
SKAG1SL01
3
Skartgripagerð
skartgripagerð með silfurleir
Samþykkt af skóla
1
1
Markmiðið er að nemendur kynnist fjölbreyttum aðferðum sem notaðar eru við listsköpun með silfurleir og þeim hjálpargögnum sem þarf til þess að vinna með hann. Lögð verður áhersla á að nemandinn fari heim með verkefni sem auka vinnugleði nemandans.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að það þarf að koma með hugmynd til þess að verkið geti orðið að veruleika
að það þarf að nota ýmis verkfæri til þess að hluturinn geti orðið til
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota þjalir og fl. verkfæri við fínvinnuna
útfæra hugmyndina áður en farið er að vinna með silfurleirinn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
temja sér vönduð vinnubrögð við verkefnið
það þarf að vinna að þróun verksins frá upphafi til enda
Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá